Problem B
Bilað Lyklaborð
Languages
en
is
Lyklaborðið hans Sigurjóns bilaði um daginn þegar hann hellti óvart gosi yfir það. Eftir atvikið hefur lyklaborðið tekið upp á því, trúlega í hefndarskyni, að skrifa stundum tákn mörgum sinnum þegar Sigurjón smellir á takka. Sigurjón er orðin fokvondur á þessum stælum í lyklaborðinu og talar ekki um neitt annað. Þú sérð í hendi þér að Sigurjón muni aldrei taka til aðgerða í málinu og hyggst því gefa honum forrit sem hendir út öllum táknaendurtekningum.
Inntak
Inntak er ein lína sem samanstendur af $n$ enskum lágstöfum ásamt bilum.
Úttak
Prentið inntakið nema að allar táknaendurtekningar hafa verið fjarlægðar. Það er að segja, úttakið á aldrei að hafa sama stafinn tvisvar í röð.
Stigagjöf
Hópur |
Stig |
Takmarkanir |
1 |
40 |
$1 \leq n \leq 100$, sama tákn kemur aldrei oftar en tvisvar í röð. |
2 |
40 |
$1 \leq n \leq 100$. |
3 |
10 |
$1 \leq n \leq 100\, 000$, sama tákn kemur aldrei oftar en tvisvar í röð. |
4 |
10 |
$1 \leq n \leq 100\, 000$. |
Sample Input 1 | Sample Output 1 |
---|---|
lyklaabordid eer biladd |
lyklabordid er bilad |
Sample Input 2 | Sample Output 2 |
---|---|
eg hatta taekkni svoooo mikiid |
eg hata taekni svo mikid |